Luba áfram í Ólafsvík

Tomasz Luba.
Tomasz Luba. mbl.is/Þórður Arnar.

Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvíkur hefur framlengt samning sinn við pólska varnarmanninn Tomasz Luba, en samningur hans við Víking Ólafsvík gildir út keppnistímabilið 2017. 

Luba hefur leikið með Víkingi Ólafsvík frá árinu og 2010 og hefur lekið 204 leiki fyrir Víking Ólafsvík og skorað í þeim leikjum sex mörk. Hann lék áður með Reyni í Sandgerði. Víkingur Ólafsvík hafnaði í 10. sæti Pepsi-deildar karla á síðustu leiktíð og leikur því áfram í efstu deild á komandi leiktíð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert