Nkumu kyrr á Akureyri

Archange Nkumu í leik með KA.
Archange Nkumu í leik með KA. mbl.is/Þórir Ó Tryggvason

Enski knattspyrnumaðurinn Archange Nkumu hefur samið við KA-menn um að leika með þeim næstu tvö árin en hann hefur undanfarin tvö keppnistímabil leikið með Akureyrarliðinu. Þetta kemur fram á vef KA.

Nkumu er 23 ára gamall miðjumaður og ólst upp hjá Chelsea en hann var í röðum félagsins til 2013. Hann lék aldrei með aðalliði félagsins en var lánaður til liða í neðri deildum og spilaði síðan með utandeildaliðinu Concord Rangers.

Hann kom til Akureyrar fyrir tímabilið 2015 og hefur leikið 41 af 44 leikjum KA í 1. deildinni undanfarin tvö ár, og skorað 3 mörk, og tók þátt í að vinna deildina með KA á þessu ári þannig að hann spilar með liðinu í úrvalsdeildinni á komandi leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert