KR og Selfoss gerðu 2:2 jafntefli í Lengjubikar karla í knattspyrnu í Egilshöllinni í dag.
Ivan Martínez kom Selfyssingum yfir snemma leiks en Pálmi Rafn Pálmason og Óskar Örn Hauksson skoruðu með stuttu millibili og komu KR-ingum yfir.
James Mack átti hins vegar lokaorðið og jafnaði í 2:2 og þar við sat en öll mörkin komu í fyrri hálfleiknum.
Upplýsingar um markaskorara voru fengnar á fotbolti.net.