Valur Reykjavíkurmeistari

Margrét Lára Viðarsdóttir tekur á móti bikarnum í Egilshöllinni í …
Margrét Lára Viðarsdóttir tekur á móti bikarnum í Egilshöllinni í kvöld. mbl.is/Golli

Valur varð í kvöld Reykjavíkurmeistari kvenna í knattspyrnu eftir 3:1 sigur gegn Fylki í Egilshöllinni.

Fylkir fékk óskabyrjun þegar Sæunn Rós Ríkharðsdóttir skoraði á 1. mínútu leiksins. Margrét Lára Viðarsdóttir jafnaði metin á 45. mínútu leiksins og Elín Metta Jensen innsiglaði sigur Vals með tveimur mörkum í síðari hálfleik.

Valur er því Reykjavíkurmeistari 2017 í kvenna- og karlaflokki.

Markaskorarar leiksins eru fengnir hjá fótbolti.net.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert