Samira glímir við alvarleg veikindi

Samria Suleman.
Samria Suleman.

Knattspyrnukonan Samria Suleman frá Gana sem leikið hefur með liði Víkings Ólafsvíkur undanfarin ár mun ekki spila meira með liðinu vegna veikinda. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Víkingi Ólafsvík.

Fréttatilkynningin frá Víkingi Ólafsvík;

„Samira, sem er 26 ára gömul, mætti til landsins í vor og hóf sitt þriðja tímabil með liðinu en við læknisskoðun kom í ljós að hún er með stórt æxli í kviðnum og þarf að fara tafarlaust í aðgerð. Samstundis var ákveðið hjá stjórn félagsins að Samira fengi þá læknismeðferð sem hún þarf hér á Íslandi

Alls hefur Samira leikið 30 leiki fyrir kvennalið Víkings Ó. og skorað í þeim 23 mörk. Hún er mikill leiðtogi innan félagsins og til marks um það má nefna að í vor var hún gerð að fyrirliða liðsins. Auk þess að spila með liðinu hefur hún einnig komið að þjálfun yngri flokka félagsins.

Framundan er því erfið aðgerð og bataferli og eins og gefur að skilja er um fjárhagslega íþyngjandi læknismeðferð að ræða. Til að létta undir með Samiru hefur félagið sett af stað fjársöfnun og geta þeir sem vilja leggja henni lið lagt inn frjáls framlög á eftirfarandi reikning.“

Reikningsnúmer: 0190-05-060550

kt: 470579-0139

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert