Belgíski varnarmaðurinn Jonathan Hendrickx hjá Íslandsmeisturunum FH í knattspyrnu er á leið frá félaginu. Það staðfesti Heimir Guðjónsson þjálfari liðsins í viðtali við mbl.is eftir 1:0 sigur FH á ÍBV í úrvalsdeild karla í Vestmannaeyjum í dag.
Hendrickx var ekki í leikmannahópi FH í dag og er að sögn Heimis á leið í lið erlendis.
„Hann er að fara til liðs erlendis og það verður klárað á næstunni,“ sagði Heimir í kvöld.
Hendrickx hefur verið hjá FH frá árinu 2014 og á að baki 49 leiki með liðinu í efstu deild.