Hendrickx í portúgölsku B-deildina

Jonathan Hendrickx er farinn til Portúgals.
Jonathan Hendrickx er farinn til Portúgals. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Belgíski knattspyrnumaðurinn Jonathan Hendrickx hefur verið seldur frá FH til portúgalska félagsins Leixões S.C. sem leikur í B-deildinni þar í landi. 

Hendrickx hefur verið hjá FH síðan sumarið 2014 og lék hann stórt hlutverk í Íslandsmeistaratitlum FH síðustu tveggja ára. Hann hefur alls leikið 55 leiki fyrir FH, án þess að skora. 

Leixões fór í umspil um að halda sæti sínu í næstefstu deild Portúgals á síðustu leiktíð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert