Þóroddur dæmir í Tyrklandi

Þóroddur Hjaltalín.
Þóroddur Hjaltalín. mbl.is/Golli

Knattspyrnudómarinn Þóroddur Hjaltalín mun í byrjun júlí dæma á lokamóti UEFA Regions Cup sem fram fer í Tyrklandi.

Um er að ræða keppni áhugamannaliða á vegum UEFA en leikið var í riðlakeppni mótsins síðastliðinn vetur þar sem Þóroddur var einnig við störf. 

Þóroddur mun dæma tvo leiki á mótinu auk þess sem hann verður fjórði dómari á einum leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert