Vorum skelfilegir í 15 mínútur

Milos Milojevic
Milos Milojevic mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Við verðum að virða stigið, að koma til Vestmannaeyja og taka eitt stig, maður á ekki að vera ósáttur með það. Við vorum komnir í forustu og mér fannst við betri aðilinn og ég er því með blendnar tilfinningar með eitt stig,“ sagði Milos Milojevic, þjálfari Breiðabliks, eftir 1:1 jafntefli við ÍBV í dag.

„Við vorum frábærir í 45 mínútur, lala í 15 mínútur og skelfilegir í 15 mínútur,“ sagði Milos þegar hann var spurður út í spilamennsku liðsins.

Aron Bjarnason var í hægri bakverðinum í dag. Hvernig fannst þér hann standa sig?

„Mér fannst hann koma vel út, það kom engin hætta hjá honum og svo er hann alltaf hættulegur þegar hann er með boltann,“ sagði Milos að lokum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert