Tímabilið hugsanlega búið hjá Halldóri

Halldór Orri Björnsson í leik með FH gegn Víkingi Ólafsvík.
Halldór Orri Björnsson í leik með FH gegn Víkingi Ólafsvík. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Halldór Orri Björnsson, leikmaður Íslandsmeistara FH, leikur hugsanlega ekkert meira með liðinu á tímabilinu vegna meiðsla á fingri sem hann varð fyrir í leik gegn sínum gömlu félögum í Stjörnunni í Pepsi-deildinni á dögunum.

Halldór Orri festi fingurna á milli auglýsingaskilta á Samsung-vellinum í Garðabæ með þeim afleiðingum að sin í vísifingri slitnaði.

„Það kom í ljós að sin í vísifingrinum slitnaði og ég þurfti að fara í aðgerð daginn eftir leikinn við Stjörnuna. Ég er með spelku sem ég þarf að vera með næstu vikurnar og það er ekki víst hvort ég nái að spila eitthvað meira á þessu tímabili.

Þetta var algjör óheppni. Ég lenti á fleygiferð á auglýsingaskiltinu fyrir utan völlinn og það festust tveir puttar á milli þeirra. Langatöngin slapp ágætlega en sinin gaf sig á vísifingrinum. Ég hitti lækninn á vikufresti og staðan er tekin eftir það. Vonandi næ ég að spila meira áður en tímabilið er búið en það er alls ekki víst. Læknirinn sagði mér að það væri hætti á að sinin muni slitna aftur ef ég fer of snemma af stað svo ég verð að fara varlega,“ sagði Halldór Orri við mbl.is en hann gekk í raðir FH fyrir tímabilið frá Stjörnunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert