Þóroddur hættur við að hætta að dæma

Þóroddur Hjaltalín dæmdi viðureign Manchester City og West Ham á …
Þóroddur Hjaltalín dæmdi viðureign Manchester City og West Ham á Laugardalsvelli í sumar. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Knattspyrnudómarinn Þóroddur Hjaltalín hefur ákveðið að halda áfram að dæma, en áður hafði hann tilkynnt að þetta yrði hans síðasta sumar með flautuna.

Þóroddur staðfesti þetta við fotbolti.net í dag og segir að hann sé að eiga sitt besta tímabil í langan tíma og það hafi haft áhrif á ákvörðunina.

Gunnar Jarl Jónsson, einn fremsti dómari landsins, tilkynnti á dögunum að hann væri að hætta og það var jafnframt ástæðan fyrir því að Þóroddur ætlar að halda sínu striki. Hann hef­ur dæmt í efstu deild karla frá ár­inu 2009.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert