Ísland innblástur fyrir minni þjóðir

Albert Bunjaki.
Albert Bunjaki. AFP

Albert Bunjaki, landsliðsþjálfari karlaliðs Kósóvó, hrósaði Íslandi eftir leik þjóðanna í undankeppni HM í knattspyrnu í gær. Eins og flestir vita hafði Ísland betur gegn Kósóvó á Laugardalsvelli í gærkvöldi og tryggði sér sæti í lokakeppni HM í Rússlandi á næsta ári. 

„Til hamingju Ísland. Þetta er frábært dæmi um litla þjóð sem getur átt gott og vel skipulagt lið. Ísland veitir innblástur fyrir minni þjóðir,“ sagði Bunjaki. Um sexfalt fleiri búa í Kósóvó en á Íslandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert