Fimm gerðu nýjan samning við Val

Leikmennirnir sem sömdu við Val ásamt ungum iðkendum. Á myndina …
Leikmennirnir sem sömdu við Val ásamt ungum iðkendum. Á myndina vantar Arnar Svein Geirsson. Ljósmynd/Valur

Þrír leikmenn úr Íslandsmeistaraliði Vals í knattspyrnu karla hafa skrifað undir nýjan samning við félagið. Hið sama gerðu tveir efnilegir leikmenn félagsins.

Einar Karl Ingvarsson, Andri Adolphsson og Arnar Sveinn Geirsson hafa allir gert nýja samninga við Val. Einar Karl samdi til þriggja ára en þeir Andri og Arnar Sveinn til tveggja ára.

Aron Elí Sævarsson, sem valinn var efnilegasti leikmaður meistaraflokks Vals árið 2017, skrifaði undir samning til tveggja ára en hann var á láni hjá KH sem vann sér sæti í 3. deild á síðustu leiktíð.

Edvard Dagur Edvardsson, fyrirliði og besti leikmaður 2. flokks Vals, skrifaði undir samning til tveggja ára.

Fyrr í þessari viku fékk Valur til sín tvo leikmenn, þá Ólaf Karl Finsen úr Stjörnunni og Ívar Örn Jónsson úr Víkingi R.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert