„Erum vel hvíldar“

Hallbera Guðný Gísladóttir segir landsliðskonurnar í fótboltanum ekki sökkva sér ofan í umræðuna á samfélagsmiðlunum en tekur þó fram að skemmtilegra sé að renna yfir kveðjurnar þegar vel gengur. 

„Maður kíkir létt yfir þetta fyrst eftir leik en síðan reynir maður ekki að skoða allar fréttir sem eru birtar og allar kveðjurnar,“ sagði Hallbera þegar mbl.is spjallaði við hana í Znojmo í Tékklandi í dag. 

Hallbera gerir ekki lítið úr því að leikurinn gegn Þjóðverjum hafi útheimt mikla orku en henni fannst þó staðan á mannskapnum vera góð í leikslok.

„Samt er svo ótrúlega skrítið að við unnum það vel saman að mér persónulega leið ekki þannig að við værum alveg búnar á því,“ sagði Hallbera meðal annars en viðtalið við hana í heild sinni er að finna í meðfylgjandi myndskeiði. 

Hallbera Guðný Gísladóttir.
Hallbera Guðný Gísladóttir. mbl.is/Reimund Sand
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert