Eflaust hafa margir reynt að spá fyrir um hvaða liðum Ísland yrði með í riðli á heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu næsta sumar og að minnsta kosti einn hafði hárrétt fyrir sér.
Illugi Jökulsson skrifaði á Facebook-síðu sína í morgun að fólk gæti hætt að bíða eftir HM-drættinum í Rússlandi því Ísland fengi Argentínu, Króatíu og Nígeríu í sinn riðil. Sú varð einmitt raunin. Illugi tók fram að hann gæti einnig sagt til um hvernig leikir Íslands myndu enda en taldi ekki sanngjarnt að greina strax frá því.