Frakkar báru sigurorð af Kamerún, 3:2, í vináttulandsleik sem fram fór á Stade de la Beaujoire – Louis Fonteneau heimavelli Kolbeins Sigþórssonar hjá Nantes í kvöld. Dimitri Payet skoraði sigurmark Frakka með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu í uppbótartíma leiksins.
Blaise Matuidi kom Frökkum yfir á 20. mínútum leiksins, en Vincent Aboubakar jafnaði metin fyrir Kamerún tveimur mínútum síðar. Olivier Giroud náði síðan forystunni fyrir Frakka á nýjan leik með marki sínu á 42. mínútu leiksins.
Það var svo mikil dramatík undir lok leiksins. Eric Maxim Choupo-Moting jafnaði metin að nýju fyrir Kamerún tveimur mínútum fyrir leikslok. Dimitri Payet skoraði síðan sigurmark Frakka með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu í uppbótartíma leiksins.