Hazard lagt upp jafn mörg á EM og í allan vetur

Eden Hazard fagnar marki sínu í gær.
Eden Hazard fagnar marki sínu í gær. AFP

Eden Hazard virðist vera farinn að finna fjölina sína á ný eftir erfitt tímabil með fráfarandi Englandsmeisturum Chelsea.

Hazard lagði aðeins upp þrjú mörk allt síðasta tímabil hjá Chelsea, eftir að hafa farið á kostum árið á undan. Hann er nú hins vegar búinn að leggja upp þrjú mörk í þeim fjórum leikjum sem Belgía hefur spilað á Evrópumótinu í Frakklandi.

Hazard hefur lagt upp þrjú mörk líkt og Kevin De Bruyne, og saman hafa þeir teiknað upp sex af sjö mörkum Belga á mótinu. Belgía mætir Wales í átta liða úrslitum mótsins.

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 24. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 24. APRÍL

Útsláttarkeppnin