Ísland mætir Frakklandi i 8-liða úrslitunum á EM á Stade de France-vellinum glæsilega í Saint-Denis, sem er í úthverfi Parísarborgar, á sunnudagskvöldið.
Leikurinn hefst klukkan 21 að staðartíma eða klukkan 19 að íslenskum tíma. Völlurinn tekur um 86 þúsund áhorfendur og sigurliðið úr þeim leik mætir sigurvegaranum í viðureign Þýskalands og Ítalíu í undanúrslitunum.