Færeyingar hafa stutt við bakið á íslenska landsliðinu í knattspyrnu frá fyrsta degi Evrópukeppninnar í knattspyrnu í Frakklandi. Þeir hafa fylgst grannt með útsendingum sjónvarpsins frá leikjum Íslands og fjölmennt á „trappuni í Vágsbotni“ í Þórshöfn og fylgst með útsendingum frá leikjum íslenska landsliðsins sem sýndir hafa verið á risaskjá.
Eins og endranær fylgdist fjölmenni með leik Íslendinga og Englendinga í gærkvöldi og fagnaði lengi og innilega sigri íslenska landsliðsins á enska landsliðinu, 2:1. Fréttavefurinn portal.fo hefur klippt saman meðfylgjandi myndskeið af viðbrögðum áhorfenda þegar mörkin þrjú voru skoruð og þegar flautað var af og íslenskur sigur var í höfn. Óhætt er að segja að gleðin sé innileg.