„Við erum líka komnir áfram!“

Thierry Henry er léttur í lund þessa dagana. Landar hans …
Thierry Henry er léttur í lund þessa dagana. Landar hans mæta Íslandi í 8-liða úrslitunum á EM. AFP

Þeim Gianluca Vialli, Thierry Henry og Vincent Kompany þótti ekki leiðinlegt að stríða Gary Lineker, þáttastjórnanda Match of the Day, á BBC í þættinum í gær.

„Ítalía er komin áfram í 8-liða úrslitin, það hafði enginn trú á þeim,“ sagði Lineker áður en þeir félagar fóru að trufla hann en England féll eins og frægt er orðið úr leik á Evrópumótinu í knattspyrnu í gærkvöldi eftir 2:1 tap gegn Íslandi.

„Við erum líka komnir áfram!“ sagði Thierry Henry eftir að Vialli var byrjaður að gantast, „Belgía! Í næstu umferð!“ sagði Vincent Kompany áður en þeir litu allir á aumingja Lineker og fóru að skellihlæja.

Þetta skemmtilega innslag má sjá hér að neðan.

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 20. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 20. APRÍL

Útsláttarkeppnin