Vill endurheimta Ragnar

Ragnar Sigurðsson verður vafalaust eftirsóttur eftir frammistöðu sína með íslenska …
Ragnar Sigurðsson verður vafalaust eftirsóttur eftir frammistöðu sína með íslenska landsliðinu á EM í Frakklandi. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Ståle Solbakken, þjálfari danska knattspyrnuliðsins FCK Kaupmannahöfn, segist gjarnan vilja fá Ragnar Sigurðsson aftur til liðsins. Ragnar lék um þriggja ára skeið með FCK en yfirgaf liðið snemma árs 2014 þegar hann var seldur til rússneska liðsins Krasnodar.

Solbakken segist hafa rætt við Ragnar um hugsanlega endurkomu hans og Ragnar hafi verið jákvæður. Ragnar er samningsbundinn Krasnodar fram til ársins 2018. 

„Eftir því sem á líður Evrópukeppnina dregur nú frekar úr líkunum á að Ragnar komi til FCK í bráð,“ skrifar Solbakken m.a. í pistli sínum í danska blaðið BT.

Ragnar skoraði jöfnunarmarkið í leik Íslands og Englands í Nice í fyrradag.

Frétt mbl.is: Leicester og Tottenham með Ragnar í sigtinu

Eng­lands­meist­ar­ar Leicester og Totten­ham eru einnig meðal þeirra liða sem einnig hafa sýnt áhuga á að fá Ragn­ar til liðs við sig.

Enska blaðið Guar­di­an grein­ir frá áhuga ensku úr­vals­deild­arliðanna. Þá er Li­verpool einnig á hliðarlín­unni og lík­lega yrði það draum­ur fyr­ir Ragn­ar að spila með Li­verpool en það er fé­lagið sem hann hef­ur haldið með frá unga aldri.

Ragn­ar hef­ur vakið verðskuldaða at­hygli fyr­ir frammistöðu sína á EM og ekki síst eft­ir frá­bær­an leik á móti Eng­lend­ing­um í fyrra­kvöld þar sem hann var út­nefnd­ur besti leikmaður­inn.

En það eru fleiri lið á hött­un­um eft­ir Ragn­ari. Guar­di­an grein­ir frá því að þýsku liðin Schal­ke og Wolfs­burg hafi sett sig í sam­band við Krasnod­ar en talið er að verðmiðinn á Ragn­ari sé 5 millj­ón­ir evra sem jafn­gild­ir 690 millj­ón­um króna.

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 28. MARS

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 28. MARS

Útsláttarkeppnin