Það fór ekki vel í einn stuðningsmann enska landsliðsins í knattspyrnu þegar Englendingar töpuðu fyrir Íslendingum í 16-liða úrslitum Evrópumótsins í Nice fyrr í vikunni.
Stuðningsmaðurinn tapaði 20 þúsund pundum sem jafngildir 3,3 milljónum króna og hann gjörsamlega missti vitið eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.