Ótrúlegur þrumufleygur - myndskeið

Radja Nainggolan fagnar marki sínu.
Radja Nainggolan fagnar marki sínu. AFP

Belgía er komið yfir gegn Wales í 8-liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu en leikurinn er spilaður á Stade Pierre Mauroy-leikvanginum í Lille. Radja Nainggolan skoraði mark Belgíu.

Nainggolan skoraði á 13. mínútu leiksins en hann fékk þá boltann fyrir utan teig áður en hann mundaði skotfótinn og þrumaði knettinum í samskeytin.

Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 25. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 25. APRÍL

Útsláttarkeppnin