Lara Dickenmann, fyrirliði svissneska landsliðsins í knattspyrnu var ljónheppin með það að sleppa með að fá sitt annað gula spjald í leik liðsins gegn Íslandi á EM í knattspyrnu. Sjáðu myndskeiðið.
Sjá frétt mbl.is: Glórulaust brot á Dagnýju
Dickenmann, sem er liðsfélagi Söru Bjarkar Gunnarsdóttur hjá Wolfsburg í Þýskalandi, fékk gult spjald fyrir ljótt brot á Dagnýju Brynjarsdóttur snemma leiks og hér að neðan má sjá er hún, á gulu spaldi, braut á Hólmfríði Magnúsdóttur, sem var þá nýkomin inn á völlinn.
Brotið hjá Dickenmann:
🤔#ISLSUI #WEURO2017 pic.twitter.com/epthgC8uKq
— Ann Odong ⚽️📝 (@AnnOdong) July 22, 2017