Áttu að dæma í dag
Handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson áttu að dæma á Evrópumeistaramótinu í Serbíu í dag. Hlynur greindi Morgunblaðinu frá þessu í gær en þeir höfðu ekki fengið að vita hvaða leik þeir áttu að dæma.
Í dag fara undanúrslitaleikirnir fram í keppninni sem og leikurinn um 5. sætið. Þótt þeir félagarar hafi fengið vitneskju um að þeir myndu dæma einn leikjanna þriggja þá kom aldrei til þess þar sem flensa herjar á Hlyn.
Hlynur fann fyrst fyrir veikindunum á miðvikudagskvöldið og í gær var orðið ljóst að þeir félagar hefðu dæmt sinn síðasta leik í keppninni. „Það var búið að tilkynna okkur að við myndum fá leik á morgun (í dag), en ekki hvaða leik, en svo gerist það að ég er orðinn veikur. Ég ligg bara uppi í rúmi og hef gert í allan dag. Því miður varð ekkert úr því og þessu móti er lokið hjá okkur. Svona er þetta og maður verður bara að taka þessu,“ sagði Hlynur þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hans í gær en hann þjáist af hálsbólgu og kvefi.
Anton og Hlynur dæmdu þrjá leiki í keppninni og fengu mjög fínar umsagnir. Þeir geta því ekki annað en verið ánægðir með sína frammistöðu á EM. „Já við höfum fengið mjög góða dóma fyrir okkar leiki. Menn hafa verið mjög ánægðir með okkur. Það hefur verið frábært að vera hérna,“ sagði Hlynur.
Sjá lengra viðtal við Hlyn í Morgunblaðinu í dag.






