Aron Pálmarsson var valinn besti leikmaður Íslendinga í sigurleiknum gegn Norðmönnum á EM í kvöld og kom það val engum á óvart.
Aron átti frábæran leik og réðu norsku varnarmennirnir ekkert við hann. Aron skoraði 8 mörk, átti 7 stoðsendingar og fiskaði tvö vítaköst.