Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í þýska landsliðinu í handknattleik voru gestir í Das Aktuelle Sportstudio, vikulegum íþróttaþætti í þýska ríkissjónvarpinu, í gærkvöld.
Leikmennirnir mættu í sjónvarpssal og var vel fagnað af áhorfendum enda nýbúnir að landa Evrópumeistaratitlinum. Dagur mætti svo skömmu síðar í salinn og hafði með sér fat fullt af hamborgurum, sem hann aðstoðaði við að matreiða hjá Hamborgarabúllu Tómasar í Berlín. Leikmenn þýska liðsins munu vera miklir aðdáendur Búllunnar, og Dagur hafði lofað þeim hamborgurum af staðnum tækist þeim að vinna Dani og tryggja sér sæti í undanúrslitum EM. Þýska liðið gerði gott betur, sem kunnugt er.
Myndskeið úr þættinum má sjá hér að neðan.