Ítalskir fjölmiðlar segja í dag að Juventus hafi hug á að bjóða í Peter Crouch, sóknarmann Liverpool og enska landsliðsins í knattspyrnu. Það sé jafnvel inni í myndinni að David Trezeguet fari í staðinn til Liverpool.
Crouch hefur ekki átt fast sæti í liði Liverpool í vetur þar sem Rafael Benítez hefur mest haldið sig við að Dirk Kuyt og Craig Bellamy leiki saman í fremstu víglínu. Crouch hefur þó spilað talsvert og skoraði glæsilegt mark í 3:0 sigri Liverpool á Bolton á nýársdag.
Crouch hefur til þessa sagt að hann hafi ekki áhuga á að yfirgefa Anfield.