Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur staðfest að fjórir leikmanna hans sem hafa verið meiddir séu að hefja æfingar á ný. Það séu þó engar líkur á að þeir nái að spila gegn Sunderland í úrvalsdeildinni á sunnudaginn.
Jens Lehmann markvörður mætti á sína fyrstu æfingu eftir meiðslin í dag og þeir William Gallas, Tomas Rosicky og Alex Song eru væntanlegir á æfingu á morgun. Þá er aðeins Eduardo da Silva einn eftir á meiðslalista félagsins.