Sky News fréttastofan staðfesti rétt í þessu að stjórn enska knattspyrnusambandsins hefði ákveðið á fundi sínum í morgun að segja landsliðsliðsþjálfaranum Steve McClaren upp störfum. Honum mistókst að koma Englandi í úrslitakeppni EM 2008 þó liðinu nægði jafntefli gegn Króatíu á heimavelli í gærkvöld.