Kewell orðaður við Juventus

Harry Kewell leikmaður Liverpool.
Harry Kewell leikmaður Liverpool. Reuters

Ástralinn Harry Kewell er sagður á leið til Juventus í sumar. Fimm ára samningur Kewells við Liverpool rennur út í sumar og hafa forráðamenn Liverpool ekki uppi áform um að framlengja samninginn við Ástralann.

Að því er fram kemur í ítalska blaðinu Corriere dello Sport er Claudio Ranieri þjálfari Juventus mikill aðdáandi Kewells og hefur í hyggju að reyna að fá hann til liðs við sig í sumar.

Kewell, sem er 29 ára gamall, hefur misst mikið af leikjum Liverpool síðustu tvö keppnistímabilin vegna meiðsla, en Sunderland, Celtic og Bolton hafa einnig sýnt áhuga á að fá hann í sínar raðir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert