Terry rekinn af velli á Goodison Park

John Terry er kominn í jólafrí eftir rauða spjaldið í …
John Terry er kominn í jólafrí eftir rauða spjaldið í kvöld. Reuters

John Terry, fyrirliði Chelsea, var rekinn af velli á 35. mínútu í viðureign Lundúnaliðsins við Everton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu sem nú stendur yfir á Goodison Park, heimavelli Everton í Liverpool.

Terry braut á Leon Osman með háskalegri tæklingu og Phil Dowd dómari sýndi honum umsvifalaust rauða spjaldið. Terry fer þá væntanlega í þriggja leikja bann og spilar ekki meira með Chelsea fyrr en eftir áramótin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert