Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, segir lið sitt vel geta unnið Real Madrid í kvöld, í fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni, þó svo Liverpool yrði án fyrirliða síns, Steven Gerrard.
„Við getum náð góðum úrslitum án Steven. Við höfum gert það áður. Hann er frábær leikmaður, einn sá besti í heiminum, og við vonum að hann verði leikfær. En þegar við unnum þetta 2005, voru margir leikir án Gerrard. En auðvitað erum við betra lið með hann innanborðs,“ sagði Carragher.
Ekki er enn ljóst hvort Gerrard verður með í leiknum í kvöld, en hann hefur glímt við meiðsli í hásin.
Ljóst er að um hörkuleik verður að ræða, lið Real Madrid virðist vera að „toppa“ á réttum tíma, undir stjórn Juande Ramos og eru til alls líklegir. Að sama skapi hefur Liverpool liðið verið að hökta undanfarið í deildinni, þó svo árangur þeirra í meistaradeildinni sé ávallt tilkomumikill.