Ronaldo meiddist á ökkla

Ronaldo í meðhöndlun á æfingu Manchester United í gærkvöld.
Ronaldo í meðhöndlun á æfingu Manchester United í gærkvöld. Reuters

Smá ótti ríkir í herbúðum Manchester United vegna meiðsla sem Cristiano Ronaldo kveinkaði sér undan á æfingu liðsins á Ólympíuleikvanginum í Róm í gærkvöld. Ronaldo, sem missti af byrjun tímabilsins vegna aðgerðar á ökkla, þurfti að fá meðhöndlun hjá sjúkraþjálfurum liðsins vegna meiðsla sem hann varð í ökklanum.

Engu að síður er reiknað með að Portúgalinn verði í byrjunarliði United í kvöld í draumaúrslitaleiknum gegn Barcelona en flautað verður til leiks í Róm klukkan 18.45.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert