Guðlaugur Victor Pálsson lék allan tímann með varaliði Liverpool í kvöld þegar liðið hafði betur gegn grönnum sínum í Everton, 1:0. Það var hinn 18 ára gamli Nathan Eccleston sem skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu en hann lék sinn fyrsta leik með aðalliði Liverpool í síðustu viku þegar það tapaði fyrir Arsenal í deildabikarnum.