Umboðsmaður enska landsliðsmannsins David Beckhams segir að leikmaðurinn hafi verið með asma undanfarin ár en það hafi ekki komið niður á frammistöðu hans á vellinum.
Það sást til Beckhams með innöndunarstaut í leik LA Galaxy og Real Salt Lake í úrslitum MLS-deildarinnar í fyrrakvöld þar sem Beckham og félagar töpuðu í vítaspyrnukeppni.
,,David hefur verið með asma frá því hann var ungur drengur en það hefur ekki haft nein áhrif á frammistöðu hans. Hann hefur aldrei leitað eftir því að gera þetta opinbert en ef þetta getur blásið einhverjum í brjóst sem þjást af asma og telja sig geta gert einhverja frábæra hluti eins og margir aðrir íþróttamenn hafa gert þá er það bara betra ,“ segir Simon Oliveira umboðsmaður Beckhams við breska blaðið Daily Mail.