Hvar svarar íþróttamaður gagnrýni og illu umtali. Jú, inni á vellinum, og það hefur Eiður Smári Guðjohnsen svo sannarlega gert upp á síðkastið. Besti knattspyrnumaður þjóðarinnar, ef ekki sá besti sem Ísland hefur alið af sér, er farinn að sýna snilli sína á nýjan leik og hefur gefið því fólki sem hefur haldið því fram að hann væri búinn á því, langt nef.
Á nokkrum dögum hefur Eiður Smári unnið hug og hjörtu stuðningsmanna Tottenham og eins og hann hefur sjálfur sagt hefur hann öðlast nýtt knattspyrnulíf með endurkomu sinni í ensku úrvalsdeildina.
Sjá nánar „Á vellinum,“ grein Guðmundar um Eið í 8 síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.