Houllier á leið til Aston Villa

Gerard Houllier er væntanlega á leið til Englands á ný.
Gerard Houllier er væntanlega á leið til Englands á ný. Reuters

Fullvíst er talið að Frakkinn Gerard Houllier verði ráðinn knattspyrnustjóri Aston Villa og taki við stjórninni á Villa Park innan tveggja sólarhringa.

SkySports kveðst hafa það eftir öruggum heimildum að Randy Lerner, stjórnarformaður Villa, sé búinn að bjóða Houllier starfið í kjölfarið á viðræðum við hann fyrir helgina.

Houllier, sem varð 63 ára gamall á föstudaginn, var knattspyrnustjóri Liverpool í sex ár, frá 1998 til 2004, og stýrði síðan Lyon frá 2005 til 2007. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka