Eiður Smári Guðjohnsen byrjar á varamannabekk Stoke líkt og í síðustu leikjum en Stoke mætir Newcastle á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og hefst rimma liðanna klukkan 15.10.
Tony Pulis knattspyrnustjóri Stoke gerir þrjár breytingar á liðinu frá jafnteflinu gegn West Ham um síðustu helgi. Salif Diao, Glenn Whelan og Andy Wilkinson koma inn í byrjunarliðið fyrir þá Abdoulaye Faye, Rory Delap og Jermaine Pennant, sem er meiddur.