Miklar breytingar framundan hjá United

Michael Owen yfirgefur að öllu óbreyttu lið Manchester United í …
Michael Owen yfirgefur að öllu óbreyttu lið Manchester United í sumar. Reuters

Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United sér Brasilíumennina Anderson og Rafael da Silva gegna stóru hlutverki með liðinu á komandi árum en Ferguson er nú að undirbúa að taka til í leikmannahópnum fyrir næstu leiktíð.

Að því er fram kemur í enska blaðinu Telegraph í dag munu ekki færri en sex leikmenn yfirgefa United í sumar. Í þeim hópi eru Edwin van der Sar, Gary Neville, Owen Hargreaves, Tomasz Kuszczak, Michael Owen og Wes Brown. Þá er framtíð Paul Scholes og Ryan Giggs í óvissu.

Ferguson mun kalla til baka framherjana Danny Welbeck frá Sunderland og Tom Cleverley frá Wigan og þá hyggst hann reyna að fá tvo af efnilegustu leikmönnum úrvalsdeildarinnar til liðs við sig, Jack Rodwell frá Everton og Jordan Henderson frá Sunderland.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert