Breska blaðið Mirror greinir frá því í dag að hollensku knattspyrnuliðin PSV og Ajax séu með Eið Smára Guðjohnsen í sigtinu. Eiður er sem kunnugt er á mála hjá Stoke en Tony Pulis knattspyrnustjóri félagsins er reiðubúinn að leyfa Eiði að yfirgefa liðið komi tilboð sem félagið geti sætt sig við.