Liverpool með Argentínumann í sigtinu

Kenny Dalglish.
Kenny Dalglish. Reuters

Liverpool hefur augastað á argentínska framherjanum Ezeguiel Lavezzi sem leikur með Napoli á Ítalíu. Damien Comolli yfirmaður knattspyrnumála hjá Liverpool staðfesti við enska fjölmiðla í dag að argentínski landsliðsmaðurinn væri á óskalista félagsins.

Lavezzi er 25 ára gamall og er metinn á um 20 milljónir punda. Hann hefur skorað 5 mörk í ítölsku A-deildinni á leiktíðinni og hefur átt 10 stoðsendingar.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert