Stoke á höttunum eftir Poulsen

Christian Poulsen í leik með Dönum.
Christian Poulsen í leik með Dönum. Reuters

Stoke City er á höttunum eftir danska landsliðsmanninum Christian Poulsen að því er fram kemur í enska blaðinu The Sentinel í dag. Poulsen er á mála hjá Liverpool en hann ku ekki eiga framtíð hjá liðinu undir stjórn Kenny Dalglish.

Poulsen sem í landsliðshópi Dana sem mætir Íslendingum á Laugardalsvelllinum í kvöld gekk til liðs við Liverpool frá Juventus síðastliðið sumar en honum gekk illa að festa sig í sessi og voru stuðningsmenn Liverpool ekki sáttir við danska miðjumanninn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert