Liverpool í viðræður um Adam

Charlie Adam skorar fyrir Liverpool.
Charlie Adam skorar fyrir Liverpool. Reuters

Liverpool og Blackburn munu ræða í vikunni um möguleg kaup Liverpool á skoska miðjumanninum Charlie Adam, samkvæmt heimildum Sky Sports.

Liverpool var rétt búið að kaupa Adam í lok janúar en Blackpool lagði þá stein í götu hans á síðustu stundu. Kenny Dalglish, knattspyrnustjóri Liverpool, er sagður afar áhugasamur um að fá landa sinn í hópinn.

Adam er 25 ára gamall og fellur vel undir skilgreiningu og stefnu Dalglishs sem vill fyrst og fremst fá breska leikmenn á góðum aldri í hóp Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert