Enrique á leið til Liverpool

José Enrique.
José Enrique. Reuters

Enskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Newcastle hafi samþykkt tilboð frá Liverpool í vinstri bakvörðinn José Enrique og er búist við því að gengið verði frá félagaskiptunum í vikunni.

Enrique er 25 ára gamall Spánverji, sem hefur átt góðu gengi að fagna með Newcastle, en líkt og Joey Barton og Kevin Nolan hefur hann ekki verið ánægður með stjórn félagsins og hefur tjáð sig um það á Twitter-síðu sinni.

Talið er að Liverpool greiði 5 milljónir punda fyrir Enrique en Kenny Dalglish stjóri Liverpool hefur lengi verið á höttunum eftir Spánverjanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert