Tottenham með tilboð í Samba

Christopher Samba.
Christopher Samba. Reuters

Tottenham hefur gert Blackburn tilboð í miðvörðinn Christopher Samba. Að því er fram kemur í enska blaðinu The Sun er Tottenham reiðubúið að greiða 10 milljónir punda fyrir leikmanninn og er auk þess tilbúið að láta Blackburn fá leikmenn upp í kaupin.

Leikmenn á borð við Jermain Defoe, Robbie Keane, David Bentley og Sebastian Bassong gætu farið upp í kaupin á Samba en Arsenal og Everton hafa einnig sýnt áhuga á að fá varnarmanninn sterka í sínar raðir.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert