Bolton gerir tilboð í Ngog

David Ngog í leik með Liverpool.
David Ngog í leik með Liverpool. Reuters

Bolton hefur gert Liverpool tilboð í franska sóknarmanninn David Ngog að því er heimildir Sky Sports herma. Owen Coyle, stjóri Bolton, hefur verið að svipast um eftir sóknarmanni enda yfirgáfu tveir framherjar liðið í sumar,  Svíinn Johan Elmander sem er farinn til Tyrklands og Daniel Sturridge er kominn aftur til Chelsea en hann var í láni hjá Bolton á síðustu leiktíð.

Ngog er 22 ára gamall og kom til Liverpool frá franska liðinu Paris SG fyrir þremur árum. Hann hefur komið við sögu í 61 leik með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og hefur í þeim skorað 9 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert