City skellti ríkjandi meisturum

Sergio Agüero er hér að skora fyrir City. stækka

Sergio Agüero er hér að skora fyrir City. AP

Manchester City komst auðveldlega áfram í 16-liða úrslit Evrópudeildar UEFA eftir sigur á ríkjandi meisturum Porto, 4:0, og samanlagt, 6:1. City mætir sigurvegaranum í viðureign Legia Varsjá og Sporting Lissabon í 16-liða úrslitunum en þau gerðu 2:2 jafntefli í fyrri leiknum.

90+4 Leiknum er lokið með 4:0 sigri Manchester City.

85. MARK!! Mörkunum rignir niður í Manchester City. David Pizarro nýtti sér misstök í vörn Porto og skoraði. Staðan, 4:0, og samanlagt, 6:1.

83. MARK!! City er að slátra Portúgölunum. David Silva var að koma City í 3:0 en hann skoraði af stuttu færi eftir góðan undirbúning varamannsins David Pizarro. Staðan samanlagt er nú orðin, 5:1.

77. MARK!! Varamaðurinn Edin Dzeko er að innsigla sigur City. Bosníumaðurinn fékk góða sendingu frá Agüero og skoraði af örygg. Staðan, 2:0, og 4:1 samanlagt. Til að bæta gráu ofan á svart var Rolando vikið af velli en hann fékk sitt annað gula spjald fyrir kjaftbrúk.

66. Yaya Toure miðjumaðurinn sterki var að næla sér í gult spjald sem þýðir að hann verður í leikbanni í næsta Evrópuleik City.

57. Rodriguez kom boltanum í netið hjá City en hann var dæmdur rangstæður og markið því ekki gilt.

45. Wolfgang Stark dómari hefur flautað til hálfleiks. Staðan er, 1:0, fyrir City og samanlagt, 3:1.

28. Agüero var nálægt því að skora aftur en bogaskot hans rétt utan vítateigslínu fór í slánna.

15. Yaya Toure slapp einn í gegnum vörn Porto en Helton markvörður Porto sá við hinum og andartaki síðar þurfti Joe Hart að taka á honum stóra sínum í marki City.

Markið hjá Agüero er það fljótasta í Evrópudeildinni í ár.

1. MARK!! Ótrúleg byrjun hjá Manchester City. Sergio Agüero skoraði eftir aðeins 19 sekúndur eftir sendingu frá Yaya Toure.

Man City: Hart, Richards, Kompany, Lescott, Clichy, Barry, De Jong, Nasri, Toure Yaya, Silva, Aguero. Varamenn: Pantilimon, Zabaleta, Milner, Pizarro, Dzeko, Savic, Balotelli.

Porto: Helton, Maicon, Rolando, Alex Sandro, Otamendi, Gonzalez, Joao Moutinho, James Rodriguez, Fernando, Varela, Hulk. Varamenn: Bracali, Cristian Rodriguez, Kleber, Djalma, Sapunaru, Defour, Podstawski.

Dómari: Wolfgang Stark (Þýskalandi).

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí


finnur.is