Aquilani verður með Liverpool

Alberto Aquilani.
Alberto Aquilani. Reuters

Ítalski miðjumaðurinn Alberto Aquilani verður í herbúðum Liverpool á komandi leiktíð. Frá þessu greindi umboðsmaður leikmannsins í dag.

Aquilani, sem er 28 ára gamall, gekk í raðir Liverpool frá Roma fyrir tímabilið 2009-10 en hann hefur átt erfitt uppdráttar hjá Liverpool. Síðustu tvö tímabil hefur hann verið í láni, fyrst hjá Juventus og svo hjá AC Milan á síðustu leiktíð.

„Hann mun spila fyrir Liverpool. Tímabilið er búið hjá AC Milan og það er bara gleymt. Alberto er kominn til Englands. Hann er enn leikmaður Liverpool og mun spila með því á næsta tímabili,“ segir Franco Zavaglia, umboðsmaður Aquilani sem er samningsbundinn Liverpool til ársins 2014.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert