Swansea búið að bjóða í Tom Ince

Tom Ince gæti verið á leið til Wales.
Tom Ince gæti verið á leið til Wales. Ljósmynd/Blackpoolfc.co.uk

Swansea, sem leikur í ensku úrvalsdeildinni, vill fá Tom Ince, leikmann Blackpool, og er búið að bjóða í leikmanninn samkvæmt heimildum Sky Sports.

Ince hefur byrjað tímabilið vel en hann skoraði tvö mörk í fyrsta leik Blackpool gegn Millwall í B-deildinni og var maður leiksins í leiknum gegn Leeds í vikunnni.

Manchester City hefur mikinn áhuga á að fá vængmanninn Scott Sinclair frá Swansea og vill Michael Laudrup, knattspyrnustjóri Swansea, fylla það skarð með hinum 20 ára gamla Tom Ince.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert